Sælt veri fólkið nær og fjær, til sjávar og sveita.
Hljómsveitin VAX hefur lítið látið á sér kræla síðan í haust, en þá tók bandið hringinn með trompi og spilaði á 14 tónleikum vítt og breitt um landið.
Á meðan ríkistjórnin fundar á Akureyri bretta VAX-liðar upp ermar og senda nú frá sér einlögung sem ber nafnið Sensation,
en lagið mun innan tíðar hljóma á öldum ljósvakanna ásamt myndbandi sem er í smíðum.
Þeim sem vilja eignast lagið er bent á að hægt er að kaupa lagið á TONLIST.IS
eða hlusta á lagið á MYSPACE
Af tónleikahaldi er það að frétta að samningar hafa náðst við tónleikastað íslands
Cafe Rósenberg, um að Vaxliðar hefji þar upp raust sína þriðjudaginn 16.júní.
En fyrir þá sem ekki kveikja, er það dagurinn fyrir þjóðhátíðardag íslendinga 17.júní.
Meira um það síðar og fleiri tónleika í kjölfarið.
En hafið það gott þangað til og njótið hvers annars.
VAX
:: Dori :: 10. Sep 2008 Túrinn sem við lögðum upp í í lok Ágúst er búinn að vera magnaður. Við spiluðum fyrir austan, fórum síðan til Hollands og spiluðum þar á tveim tónleikum , skelltum okkur síðan vestur um síðustu helgi og spiluðum í Keflavík, Flateyri og Ísafirði takk fyrir það. Tónleikadagskrána má finna á myspace..
kv VAX
:: Dori :: 18. Jun 2008 VAX menn kynna stoltir til sögunar nýtt myndband.
Um er að ræða myndband við nýjasta smell hljómsveitarinnar Coo Coo
og ku það vera í anda tékkneskra barnaþátta sem voru vinsælir á ríkissjónvarpinu og höfðu mikil áhrif á meðlimi VAX.
Myndbandið mun fara í spilun á sjónvakamiðlunum á næstunni en þangað til er
hægt er að líta á dýrðina á eftirfarandi tenglum
Nýtt VIDEO Coo Coo á YOUTUBE
og eða
Nýtt VIDEO Coo Coo TONLIST.IS
KV VAX
:: Dori :: 21. May 2008
Hæ... við vorum að klára að hljóðblanda lag úr VAX smiðjunni
þetta er feitur rokksmellur sem við vonum að þið kunnið að meta.
Allt er komið á fullt með að skipuleggja haustið en þá er verið að skipuleggja nokkra tónleika, tveir eru staðfestir..og útgáfu á breiðskífu
Hægt er að hlusta á hér á myspace síðunni okkarhttp://www.myspace.com/vaxmusic
:: Dori :: 18. Mar 2008 Hljómsveitin VAX mun koma fram á "Aldrei fór ég suður" söngskemmtuninni vestur á Ísafirði um páskana.
Hljómsveitin mun stíga á svið föstudaginn langa, nánari tímasetning er ekki alveg komin en VAX mun kynna til sögunnar meðal annars ný lög sem verða á breiðskífu sveitarinnar sem kemur út á árinu.
Þar sem trommari hljómsveitarinnar Baz verður vant við látinn annarstaðar á landinu mun hinn geðþekki trommari Arnar Þór Gíslason leika með sveitinni, hann hefur getið sér gott orð með því að spila með td Dr Spock, Mugison ofl.
Föstudagurinn langi með VAX á Ísafirði sjáumst þar og gleðilega hátið.
:: Dori :: 27. Feb 2008
Hljómsveitin VAX er á leiðinni á Höfn til að taka þátt í Norðurljósarblúshátíðinni.
VAX verður að spila á Kaffihorninu Laugardagskvöldið 1.Mars frá KL:23.00 til 03.00 .
Hljómsveitin ætlar að taka með sér upptökutæki til og koma sér upp minihljóðveri til að vinna að nýju efni sem ætti að koma út á árinu
Tónleikar á laugardaginn og upptökubúðir í fjóra daga.
VAX kveður
:: Dori :: 08. Jan 2008
Gleðilegt nýtt ár...2008 here we come
:: Dori :: 19. Sep 2007 Gott kvöld góðir áheyrendur
Hljómsveitin VAX mun láta að sér kveða um næstu helgi nánar tiltekið á föstudagsköldið 21. september 2007 á svokölluðum Austfirðiningadansleik.
Þar munu VAX arar koma fram ásamt hljómsveitunum Dúkkulísur, Austurlandið og einyrkjanum Guðmundi Gísla.
Staðsetningin er á hinum alræmda sportklúbbi Players í kópavogi.
VAX mun stíga fyrstir á svið eða á slaginu 12.00 á miðnætti
því er mikilvægt að mæta snemma því undanfarin ár hefur verið fullt út úr dyrum.
nánari upplýsingar er að finna á www.promo.is
:: Wilson :: 26. Aug 2007
Fæddur er nýr orgel gaur í Vax famelíuna. Til hamingju Dóri og Agnes með þennan myndarlega pilt
:: Dori :: 15. Aug 2007
Sælt veri fólkið
Lag hljómsveitarinnar VAX "like you" ætlar að verða lífseigt því lagið var valið á disk sem tengdur er íslensku kvikmyndinni Astrópía sem verður frumsýnd 22.ágúst næstkomandi.
Ekki er vitað hvort lagið muni hljóma í myndinni
en diskurinn er nú þegar kominn út og hefur fengið umfjöllun í fréttablaðin.
Einn galli er þó að hljómsveitin er þar nefnd Wax með tvöföldu V en það kemur vonandi ekki að sök, semsagt Wax = Vax.
Vegna fjölda áskorana munum við koma með fréttirnar á vax.is á íslensku en enska útgáfan verður á www.myspace.com/vaxmusic
english version on myspace.com/vaxmusic
:: Dori :: 31. Jul 2007 New Cover song on myspace our version is called MIKKY!
:: Dori :: 25. Jul 2007
we are not dead ... just trying to record some stuff, in strange places around iceland, try to find a man with microphone in this picture
:: Wilson :: 25. May 2007
Hey everybody! Our song Like you was released in USA 29. may.
The album, Riot On The Sunest; Vol 3, is availible on the vest-coast USA and at Amazon.com. The album is published by 272 Records.
We are now working on our third album. Next chance to see us live is on Road rage (Vegareiðinni 2007), a out-door-concert in Selskógur Egilsstaðir.
You can buy the album, Riot On The Sunest: Vol.3, HERE. – enjoy!:
:: Dori :: 08. May 2007 The guys in VAX are gonna perform next on a Monday blues night at Classic Rock bar in Reykjavík City..
:: Dori :: 07. Mar 2007 Northen Light Bluesfestival... TAKK!!
:: Dori :: 21. Feb 2007
Last weekend of February we are heading to the countryside to have a recording session. We´ve rented a summerhouse next to the house where our Nobel price winner Mr. Laxness lived . Maybe we´ll upload some demos on our myspace..... stay tuned..
:: Dori :: 21. Feb 2007
We´re going to perform in two concerts in east-coast of iceland the 2. and 3 of march. The first one in our hometown Egilsstadir and the other one at Hornafjordu... Hope to see you all there :)
:: Wilson :: 12. Dec 2006 The worlds best Christmas-song is available on myspace or you can just get the MP3 file HERE. It was recorded last year and if you haven't heard it before or if you want to own it, now is the change. Just press Download and it´s yours. Happy holidays!
VAX
:: Dori :: 10. Nov 2006
We have put Demo on our myspace.
The lyric is not finished and we will add some drums and stuff..
its called "Glimmerman"
Enjoy..
:: Dori :: 06. Nov 2006
R.I.P our VAX-mobile was buried last thursday.. he served VAX well... hip hip hurray
:: Wilson :: 19. Oct 2006 Hey everybody!
Icelandic Airwaves has began! We are playing @Gaukurinn on a special VICE evening on Friday. We'll start playing at 8. Hope to see you all : )
:: Dori :: 13. Oct 2006 now is the time.. 03.04 AM and Wilson is recording gitar on our new single ... its gonna be a funkrocker with klap,stap and wu huuu stay tuned for more information :)
:: Wilson :: 26. Sep 2006
We´re back!
We just arrived from a good journey to Leeuwarden Holland playing in a fabulous concert. We would like to thank everybody that listened and every body we meet and made this crazy trip possible. New pictures on myspace and some are here!
:: Wilson :: 20. Sep 2006 The band that goes under the name VAX is going abroad this thursday. The destination is Freeze Festival in Holland(NL) where the band will perform along with other bands. Vax will start playing at 23.00 Saturday night at Foyer Hall. Also coming along from Iceland are the bands Sóldögg and Apparat Organ Kvartet...
In the last days of September or the 23th, Vax is heading to Holland to perform in the Freeze-festival along with two other Icelandic bands, Sóldögg and Apparat organquartet.
See you there!
:: Wilson :: 22. Jun 2006 The new VAX song "Like You" will be released on the the summer CD "Svona er Sumarið" that will be out next month.
Other news: these days we are shooting two new videos and they will hopefully be released next month; ) - Like You and The Ring of Fire
:: Wilson :: 13. Jun 2006 A new song from VAX is out. "Like You" is the first song to be heard of the new CD that will be released this fall.
You can listen to "Like You" at www.myspace.com/vaxmusic and buy it at tonlist.is.
:: Dori :: 10. Jun 2006 Now 9 months after releasing LP "Oh No" is reviewed on music critic webside http://www.poppkorn.tk. It's written in icelandic but 70% of 100% is the final sentence.
VAX is now recording new material and "Like You" single will be released this week.
:: Wilson :: 31. May 2006 A new song will be released from VAX in a week. It´s called Like You, so get ready ; )
:: Dori :: 12. May 2006 At last our tribute to Ring Of Fire is ready. The legendary song "Ring Of Fire" is composed by Johnny Cash late wife June Carter Cash. May they rest in peace. Ring of Fire have been on our playlist for several years.
You can listen to the song on http://www.myspace.com/vaxmusic and buy it at tonlist.is
:: Wilson :: 30. Apr 2006 Hello...
Breaking news from VAX. Our drummer Mr. Halez has left the band after eight years. Not with a fuzz, but "only his time to go" he says. School and other projects has taken all of his time now, so now we´re waiting to see if a new drummer comes our way. Halez thanx for the good times.
VAX
:: Wilson :: 06. Apr 2006 Two new songs on the way. One is a cover-song, "Ring of Fire" by June Carter Cash. The other song is new VAX song that is called"Like You" and is the beginning of the new LP . More about that later.
:: Wilson :: 31. Mar 2006 Hljómsveitin VAX verður að spila á hresso föstudagskvöldið 31.mars, þeir sem mæta snemma geta séð þá róta og hljóðprufa, annars helst í fréttum að búið er að koma frá sér demói af nýju lagi, + upptökur áformaðar af vaxútgáfu "ring of fire" sem ætti að komast í spilun á næstu misserum .. lifið heil
:: Dori :: 20. Mar 2006 fréttir
eru þær helstar að höfum verið að spila þétt undanfarið,Búðir, Höfn,Nasa og Hótel borg eru að baki. Ef þið viljið heyra upptökur af Nasa tónleikunum þá eru þær hér live www.ruv.is. Næst eru það 3 Gigg sem taka við, á Fimmtudaginn spilum við á tónleikum ásamt fleirum á Grandrokk á vegum útgáfunnar COD music, því næst taka við tónleikar á rokkbúllunni Dillon þar sem við verðum ásamt hljómsveitinni Days of our lifes,endapunkturinn verður síðan á hótel sögu á laugardagskvöld eftir miðnætti á árhátið Ríkisútvarpsins... hell yeah nóg að gera og varla tími til að semja .. en það kemur
:: Wilson :: 06. Mar 2006 Norðusljósablús - Takk fyrir okkur.. : D
:: Dori :: 28. Feb 2006 VAX news 28/02/06
Samningaviðræður um næstu stóru útgáfu VAX standa nú yfir við hið nýja útgáfufyritæki COD MUSIC
( www.cod.is )
Þar á bæ á að fara nýjar leiðir í útgáfu með markaðssetningu um allan heim.
Ef plata klárast með vorinu erum við búnir að standa við það að gefa út 3 skífur á einu ári
Næstu samkomur hljómsveitarinnar eru 2.mars
á Hótel Búðum í einkasamkvæmi fyrir erlenda gesti,
3 og 4.mars á tónlistarhátíðinni Norðurljósablús á Höfn í Hornafirði .
Á höfn spilum við tvenna tónleika Föstudag og laugardag.
Þar verða einnig sænska hljómsveitin Emil & the Ecstati,
Blúskompaníið, Kentár og Mood
Við erum ekki blússveit sem slík en aukum bara á fjölbreytni hátíðarinnar
lagalisti samanstendur af okkar lögum ásamt nokkrum tökulögum
þetta verður lika vinnuferð til að taka upp einhver demó
:: Wilson :: 17. Feb 2006 Vax skrifar undir samning hjá Cod Music nýum Íslenskum label.
sjá nánar á www.cod.is
:: Wilson :: 14. Feb 2006 Your Hair is Stupid lag vikunnar á www.tonlist.is.....hægt að eignast lagið fyrir 99 kjell og alla plötuna líka...
:: Dori :: 08. Feb 2006 Nú er stefnan sett á heimaslóðirnar austur á hérað þar sem áætlað er að halda tvenna tónleika laugardaginn 11. Febrúar.
Annars vegar tónleika fyrir gesti og gangandi í Vegahúsinu Egilsstöðum kl 5 þar verður frítt inn og allir sem vettlingi geta valdið ættu að kíkja í heimsókn, eina skilyrðið er að viðkomandi hafi gaman af tónlist.
Vegahúsið er samkomustaður ungsfólks á Egilsstöðum http://vegahusid.egilsstadir.is/
Um kvöldið verða almennir miðnæturtónleikar/djamm á Svarthvítuhetjunni en þar verður líka frítt inn
:: Dori :: 31. Jan 2006 busy times.. á fimmtudag erum við að fara að spila í einkasamkæmi í ónefndu myndveri hér í bæ og á föstudag verðum við að skemmta súdentum á svitaballi Röskvu,
nýtt "press kit" tilbúið og búið að senda til kontakta í danmörku, roskilde meðal annara, myndbandið farið á ALLA myndmiðlana..
its only rock n roll YEAH!
:: Wilson :: 27. Jan 2006 4 vika X listans á þessu ári og við eum í 3. sæti... Allir mjög stoltir og glaðir yfir því :D . Nú erum við að fara á fullt að bóka og koma okkur í gírinn á nýju ári.
:: Wilson :: 25. Jan 2006
Þetta gekk bara vel :D!
Við tókum lagið og það var allt fest á filmu og verður spilað á næstu misserum...við vitum ekki alveg hvenær.
:: Dori :: 24. Jan 2006 það er ekki laust við að stresss gæti í herbúðum VAX manna, en við erum að fara kl 15.00 að taka upp innslag í Kastljós, vitum ekki hvenær það verður birt en látum vita af því þegar það verður ljóst
:: Wilson :: 20. Jan 2006 Myndbandið er komið inn á mp4 formati þannig að þeir sem ekki hafa QuickTime ættu að geta séð það núna inn á PLAYER!
:: Wilson :: 17. Jan 2006 Nýtt myndband við Your hair is stupid ! ef þið eruð ekki með Quicktime getiði sótt það hér njótið :)
:: Dori :: 17. Jan 2006 Dr.Gunni var með komennt í des sem okkur þótti vænt um að sjá "Vax - Get on: Þessir koma frá Austfjörðum og eru hressir og líka öðruvísi. Það eru allavega fáir í dag sem minna á Yardbirds og Manfred Mann með farfísuknúið sixtís popp sem er líka nútímalegt. Þeir eru búnir að gefa út plötuna "Oh No", sem ég hef reyndar hvergi heyrt minnst á annars staðar en á tonlist.is.” nú er bara að breyta því og breiða út boðskapinn
:: Dori :: 10. Jan 2006 Vinnan við myndbandið " Your Hair is Stupid" er á lokastigi. Hér er smá "teaser" enjoy....
:: Wilson :: 03. Jan 2006 Gleðileg jól og nýtt ár .. það helsta í fréttum er Vax í mogganum 23des.. viðtal við dóra en titlað halli ekki að það skipti stóru máli, komnir með myspace síðu eins og 40 miljónir annara verðum að ditta að henni á næstunni, nýjar uppfærslur á gigg.is en þar er að finna meðal annars búta úr lögum. Upptökur á 3ja disknum eru í fullum undirbúningi + myndband við "Your Hair is Stupid" untill next time>>>out
:: Dori :: 09. Dec 2005 VAX-Rauntónar hjá og Vodafone
Nú geta aðdáendur og aðrir unnendur góðra tónlistar og hringitóna fengið öll lög með vax sem raunhringitóna. Eina sem þarf er að vera með síma sem spilar rauntóna símanúmer hjá og vodafone og skrá sig inn
:: Dori :: 01. Dec 2005 Lagið VAXMAS hefur allt að bera sem gott jólalag þarf að hafa, smellin en ekki of erfiðann texta og gott viðlag. Til liðs við sig fékk sveitin engla og bjöllukór gullbringusýslu sem sá um drumbuslátt, glasaspil og bakraddir. jólatíðin er til að hafa gaman af ... njótið heil
es: þess má geta að við glasaspilið voru notuð ekta Coca cola glös.
:: Dori :: 24. Nov 2005
::Vax gerir innrás í Gallerí Humar eða frægð::
Hljomsveitin Vax verður að spila á tónleikum í Smekkleysa Plötubúð á laugardaginn 26.nóv KL:15 Spiluð verða lög af breiðskífunni Oh No ! sem kom út nú í oktober... aðrar fréttir eru þær að upptökur eru hafnar á næstu skífu meir um það later... Rock out ...
:: Dori :: 16. Nov 2005 ::KEF um helgina::
Hljómsveitin VAX ætlar að leggja land undir fót og spila í Keflavík um helgina 18 og 19 nóv á skemmtistaðnum paddys búnir að taka góða pásu síðan á airwaves. Blanda af frumsömdu og töku efni. Leikar hefjast um miðnætti..
Komnar eru viðræður af stað um nokkra tónleika í London en það er áætlað í byrjun 2006.
:: Dori :: 22. Oct 2005 ;;Tónleikarnir á Miðvikudag:: tókust vel hjá Vax smá óörryggi enda verið að spila flest lögin í fyrsta skipti opinberlega. Platan Oh No er kominn í Verslanir Skífunnar og BT og hvetjum við alla að næla sér í eintak enda magnaður gripur þar á ferð..
Annars er hljómsveitin að spila í kvöld laugardagskvöld á Hressó og mun taka frumsamda settið meðal annars....
Hér að neðan eru þeir dómar sem hljómsveitin fékk eftir tónleikana á miðvikudaginn og segir allt sem segja þarf að það verður þétt keyrsla á Hressó í kvöld. Tónleikarnir hefjast KL 22 og eru til 01
Fréttablaðið 21 okt. 2005 "...þegar ég labbaði inn þá var hljómsveitin Vax að ljúka sér af. Ég hef aldrei heyrt þeirra getið og í dagskrá Airwaves er engar upplúsingar um þá að finnaþ Samt hin efnilegasta sveit sem er greinilega að gera tónlist frá hjartanu Hefði viljað heyra meira frá þeim en mætti of seint..."
Grapevine Airwaves 22 okt. 2005
..."The first night of Iceland Airwaves belonged to local troubadour Benni Hemm Hemm. Too bad VAX and Jakobínarína had to swoop in and hijack the evening. Not that Hemm Hemm and his merry band didn ´t deliver what the overflowing masses wanted. They just happened to run up agains two groups that took advantage of the hype to deliver " I saw them when...."Performances. After opening sets by Vagínas, Benni Crespo´s Gang and the Foghorns)who delivered the line of the night"this is a bad place to be sober"), Vax set a properly epic tone for the evening. With their burly bear of a front man growling about confessing sins, demons in disguise, and getting high, things quickly escalated into the ethereal realm of a scalding Sunday morning church service. By the time Villi - tie loosened, collar splayed, sweat running down his face - threw hiM self into Devil That woman, Vax had offered the first clue that there was something special going on here..:"
:: Dori :: 17. Oct 2005 :: Oh Yeah !! 6 sæti á tónlist.is
Oh Yeah í 6.sæti tónlist.is yfir mest sóttu lögin í viku 42.. helgin var góð og blaut... en hjá hverjum var hún ekki blaut.. ;)
:: Halez :: 12. Oct 2005 Nú er hægt að hita sig upp fyrir komandi útgáfu Oh No!. En með því að fara á tónlist.is er hægt að kaupa Oh Yeah (á uþb 90 kall held ég) sem er fyrsta smáskífulagið af plötunni. Lagið er einnig komið í spilun á rás2 og þannig geta fátækir námsmenn og öryrkjar nálgast lagið með því að taka það upp á segulband.
Fyrir æsta aðdáendur á austurlandi er hægt að stilla á svæðisútvarpið í kvöld og heyra viðtal og líklegast sýnishorn af Oh No!
Oh Yeah!...
:: Dori :: 10. Oct 2005 Fréttatilkynning: Hljóðblöndun á fyrstu breiðslkífu hljómsveitarinnar VAX var að ljúka. Á breiðskífunni eru 9 ný lög sem samin voru snemmsumars í félagsheimilinu Iðavöllum á fljótsdalshéraði og er nafnið ákveðið "Oh no!". Skífan er að öllu leyti tekin upp og forblönduð í hljóðveri hljomsveitarinnar Yoda en masteruð í Studio iraq af VAX og FLex.
Til að sjá VAX spila lifandi ætti að vera auðvelt á næstunni þar sem VAX verður að spila á Hressó, Airwaves og Paddys Keflavík næstu vikurnar, einnig er áætlað að kíkja á heimaslóðirnar til tónleikahalds austur á hérað. Á tónleikum eru flutt öll lögin af oh no ! og EP plötunni sem kom út í vor ásamt tökuefni frá 6. og 7 áratugnum.
Útgáfudagur Oh No! er 20. Oktober
:: Dori :: 06. Oct 2005 ::Rás2+Upptökur á Iceland Airwaves GrandRokk:: Rás2 áætlar að taka upp tónleika VAX á Grandrokk ásamt fleiri böndum og verða upptökurnar sendar um allan heim ... líka erum við komnir með gigg á fjölmiðlamiðstöð hátíðarinnar Hressó ... yeah"It´s only rock n roll"
:: Halez :: 04. Oct 2005 Iceland Airwaves 05 Welló helló! Erum í þessum skrifuðu orðum uppí stúdíói að klára mix og final lagfæringar áður en við setjum plötuna í fjölföldun. Það ætti að taka viku eða tvær frá og með morgundeginum að fá albúmið í hendurnar... vonum að það takist fyrir airwaves tónleikana. Við félagar (Halez og Dori) vorum áðan á airwavesfundi þar sem farið var yfir málin og sviðsstjórar kynntir, okkar maður er Axel a.k.a Flex sem einmitt mixaði EP á sínum tíma. Við býttuðum á plássi við hljómsveitina Benni Hemm Hemm. Við spilum á miðvikudagskvöldið 19. október á GrandRokk semsagt á undan áðurnefndu bandi.
:: Halez :: 27. Sep 2005 Jæja... við höfum nú lokið við að taka upp 9 lög sem líklegast enda öll á breiðskífu (vinnuheiti LP) sem við ætlum að gefa út núna í október. Nú tekur við hljóðblöndun og aðrar sándpælingar... útgáfudagur hefur ekki verið settur en líklegast verður það - eins og áður sagði - um miðjann október....gaman þá!
:: Dori :: 21. Sep 2005 upptökur ganga vel : ) 6 upptekin 3 eftir klárast á sunnud...
:: Dori :: 13. Sep 2005 Hljómsveitin VAX ætlar að einbeita sér að upptöku breiðskífu sveitarinnar þennan mánuðinn. Vinnunni miðar vel þó svo að það hafi komið smá hikst í vinnsluna. Við tókum upp Oyeah og fleiri lög, skelltum okkur í Studíó sýrland til að mixa... en jafnvel eitt besta studio íslands skapar ekki neistann sem okkur fannst vanta og því skelltum við okkur aftur í heimastudioið back to squeer uno og viti menn nú er allt að gerast.... orðnir sáttir við sándið og aðferðir. Hver veit nema að við klárum þetta í þessum mánuði ... oyeah
:: Dori :: 16. Aug 2005 14 ágúst 2005 hófust upptökur á nýjum vaxdisk og ganga þær vel.. 4 trommugrunnar komnir inn og það er mál manna að betra trommusánd eða trommuleikur fyrirfinnist ekki í sólkerfinu...
:: Halez :: 27. Jul 2005 Við settum inn á playerinn brot úr lagi sem verður á næstu plötu okkar. Við köllum það Oh Yeah! og er hressilegt stuð og rokklag fyrir alla konur og kalla... endilega tjekkið á því :)
:: Dori :: 23. Jul 2005 hressó gekk vel þó að karlarnir væru soldið stirðir. Það var keyrt á fluggírnum allt kvöldið þannig að "eftirlitinu " þótti nóg um og stimplaði okkur háværustu hljómsveit á íslandi og staðfesti það með hávaðamælingu nóg af desibilum : ) nauhólfsvíkin og nellys duttu uppfyrir en næst verður stefnan tekin á Selfoss um verslunarmannahelgina ... sjáumst þar .....
:: Dori :: 21. Jul 2005 Hljómsveitin Vax verður með Tónleika á Hressó Föstudaginn 22. júlí 2005 Frá KL 22- 01. Frítt inn
Nýkomnir úr fríi og endurnærðir kynnum við nýtt lag til sögunnar á sem verður á væntanlegri plötu sem kemur út með haustinu.
:: Dori :: 10. Jul 2005 meðlimir vax hafa verið í sumarfríi undarfarnar vikur.. halez í svíþjóð og pellaghers bros í finlandi, danmörku og svíþjóð, lagið var tekið í finlandi og vax diskurinn seldur... ekki þótti tilhlýðilegt annað en að veita eiginhandaráritanir... upplagið seldist upp : ) næsta spilery er á hresso 22 júlí og þá verður sett í fluggírinn... meira um það síðar
:: Halez :: 14. Jun 2005 Þá er tónleikaferð um norður og austurland lokið í bili. Við spiluðum á Akureyri, Neskaupstað, og Fellabæ - ásamt 2 útitónleikum á Egilsstöðum. Eftir allt spileríið skelltum við okkur í stúdíó á Iðavöllum. Þar tókum við upp efni á næstu skífu sem áætlað er að gefa út í sumar... meira um það síðar. Næst spilum við á Hressó í Reykjavík (17. júní) svo verður gert stutt hlé þangað til í júlí þegar við förum á fullt að spila og taka upp meira efni.
:: Halez :: 08. Jun 2005
Vaxmóbíllinn er fundinn! Wilson og Dori fóru í smá roadtrip í gær og versluðu kaggann sem er hérna á meðfylgjandi mynd. Kannski málum við bílinn og gerum hann að alvöru rokk-kerru ef við verðum duglegir - kannski líka sjá til hvort bíllinn stenst fyrstu prófraunina til akureyrar og neskaupstaðar og til baka (helst). Nú er ekkert sem stoppar oss...
:: Wilson :: 06. Jun 2005 Þá erum á leiðinni Norður og Austur. Akureyri á fimmtudaginn, Norðfjörður á föstudaginn og Egilsstaðir á laugardaginn...bæði úti tónleikar um daginn og svarthvíta hetjan um kvöldið...síðan sunnudag, mánudag og þriðjudag í stúdíó Iðavellir...ný plata væntanleg áður en sumri líkur;)
:: Wilson :: 01. Jun 2005
Nú er hægt að kaupa VAX lögin af EP plötunni á www.tonlist.is. linkurinn er hér.
:: Dori :: 01. Jun 2005 þeir voru heldur keikir meðlimir vaxflokksins þegar þeir mættu á æfingu þriðjudagskvöldið 31.maí. Þeir Hallur, Villi og undirritaður tóku sig til við að spinna af miklum ham, og það bar árangur...
:: Halez :: 01. Jun 2005 það eru 2 myndbönd kominn inn í playerinn, annars vegar babe blue sem Sæþór tók og klippti og síðan skot sem var tekið live á gauknum ... Óskar tók það
:: Wilson :: 19. May 2005 Old Speckled Hen. Þetta er bjórinn, lífið og bjórinn. Heildsalan Veigar sá til þess að við verðum knúnir áfram í sumar og lengur af Old Speckled Hen!
:: Wilson :: 18. May 2005 VAXMOBILE. Við erum að leita okkur af litlum sendiferðabíl til að kaupa. Ef einhver á eða veit um einhvern...let us know....
:: Dori :: 18. May 2005 Um helgina er Vax að spila í Breiðinni Akranesi föstudagskvöldið 20. maí og á Snokerrokkbúllunni Áttunni Hafnarfirði laugardagsköldið 21. maí og hefjast leikar upp úr 23.00.
:: Wilson :: 18. May 2005
BABE BLUE komið á Popp TV. Ef þú vilt sjá myndbandið er hægt að senda sms-ið PTV LAG 100526 á númerið 1909. Allt brjálað að gera um helgina en meira um það í næstu frétt.
:: Dori :: 17. May 2005 Rás2 hefur sett lagið babe blue á svokallaðann B lista yfir mest spiluðu lögin á Rásinni..þar eru ekki ómerkari hljómsveitir en jaguar, sálinn.ofl... því er um að gera að hringja og sendinn emil og biðja um lagið og þá fer það á A-listann...
:: Dori :: 14. May 2005 Það er hægt að senda okkur póst undir mail... hér eru nokkrir postar "þetta er bítið sem vantaði!!" "Lögin eru hvert öðru betra. Númer þrjú í uppáhaldi as we speak." "Besta Poppland ever. Takk fyrir skemmtunina!"
takk fyrir okkur alltaf gott fyrir egoið....
:: Dori :: 14. May 2005 Diskurinn EP fer í hillur verslana skífunnar í dag. Tilboðum rignir yfir sveitina með spilamennsku í sumar... verið að skoða og plana ..
:: Wilson :: 11. May 2005
Nú er verið að plana sumarið...Babe Blue er komið í spilun á Popp TV og á Skjá einum. Allt í gangi og Tulli er bestur....By the way þá fæst platan (EP) í BT verslununum um allt land á aðeins 599 kalll
:: Halez :: 06. May 2005 Vorum að spila í beinni á Rás 2 rétt áðan, gekk vel að okkar mati, þrátt fyrir smá klikk í söngkerfi - en hey! það er kannski ekki við öðru að búast með þrjúhundruðára gömul tæki ;). Raggi bró spilaði með okkur á tamborínu og söng bakraddir, ég gleymdi að minnast á það í útsendingunni -thank you REX!
Í kvöld verðum við svo á Gauknum, frítt inn og rokk og ról.
:: Halez :: 05. May 2005 Myndbandið við Babe Blue er nú komið á vefinn okkar (THE PLAYER). Myndbandið verður fyrst um sinn eingöngu á mp4 formi sem hægt er að spila með Quicktime spilara. [ opna myndbandið ]
:: Dori :: 05. May 2005 Fréttatilkynning:
Fyrsta plata hljómsveitarinnar vax er komin út 5 mai.Platan er þröngskífa með 4 frumsömdum lögum og ber nafnið EP. Hún er tekin upp live í hljóðrita í hafnarfirði og mixuð og masteruð í Sýrlandi. Til að byrja með verður hún fáanleg í verslunum BT um allt land. Myndband við lagið Babe Blue er að fara í spilun þannig að það er allt að gerast. Þess má geta að á 6.mai Föstudag verður vax með útgáfutónleika í beinni á rás2 og spila síðan á Gauknum um kvöldið.
:: Dori :: 02. May 2005 útgáfuparty á miðvikudagskvöld á sportbarnum hverfisgötu 46 léttar veitingar, platan spiluð og nýtt mynband frumsýnt... sendu okkur póst og við sendum þér boðsmiða...
:: Wilson :: 01. May 2005 Bandið hittist í kvöld í góðri grillveislu og lagði á ráðin um komandi daga...Platan að detta inn og útgáfudagur er settur 5.5.5
:: Halez :: 30. Apr 2005
Við erum búnir að taka vefinn okkar aðeins í gegn, búnir að bæta við póstlista og hægt er að senda okkur línu í gegnum heimasíðuna. Við settum líka inn Flash spilara þar sem hægt verður að hlusta á ýmist efni frá okkur, til að byrja með er eitt lag þar, Babe Blue. Njótið heil!
:: Dori :: 22. Apr 2005 það var húsfyllir á Cafébarnum Tryggvagötu á miðvikudaginn og gífurleg stemning, við skemmtum okkur hið besta sumir kannski of mikið ... en þegar Tullamore wisky er annars vegar er það aldrei of mikið ... skál
:: Dori :: 17. Apr 2005 nú er búið að senda ep plötuna út og er hún núna í fjölföldun... next/noa noa giggið gekk vel endalaus hamingja .. dansað til kl 3... í boði tullamore.. ; )
:: Dori :: 14. Apr 2005 nú er búið að senda promo efni til london og liverpool í klúbba þar.. á laugardagsmorgun verður tekið upp myndband við lagið babe blue... á laugardagskvöld verðum við að spila í einkateiti hjá Next og tengdum verslunum ... næstu helgi verður síðan gefin út smáskífa með 4 lögum ... hversegir að allt sé ekki að gerast..
:: Dori :: 10. Apr 2005 Nú er búið að mixa 4 frumsamin lög og stefnt á að setja í spilun á fimmtudaginn 21.apríl á allar útvarpsstöðvar...vaxmenn eru ánægðir með sándið og lögin, þau eru nánast tekin upp læf og við vonum að aðrir fíli þetta líka... peace
:: Dori :: 05. Apr 2005 eftir gott kvöld á hressí síðasta föstudag, er stefnan tekin á að klára eitt eða tvö af lögunum sem við tókum upp og koma í einhverja spilun... Flex hefur verið fenginn til verksins og hefjast tilraunir næstkomandi föstudag... kannski verður afraksturinn hér eftir helgi.. : )
:: Dori :: 18. Mar 2005 Hresso Föstudagskvöld
Nelly´s Laugardagskvöld
verðum illa sviknir ef ekki verður húsfyllir...
:: Dori :: 16. Mar 2005 Í kvöld ætlum við að setja inn sönginn á lögin sem við tókum í Hljóðrita um daginn. Hressó á föstudaginn 18 mars og vonandi verður Villi búinn að læra textana til að við getum spilað eitthvað af þessu fyrir landann... until next time
:: Dori :: 04. Mar 2005
í kvöld spilum við á Hresso og vöknum hressir og skellum okkur í hafnarfjörðinn í nýjasta gamla studio íslendinga syrland-hljóðriti... til að taka upp, við erum með 11 frumsamin lög sem verða keyrð inn á mettíma og vonandi gerast einhverjir galdrar... tullamore verður með... grrr
:: Dori :: 23. Feb 2005
æfing í gær gekk vel við ætlum að frumflytja 3 lög á hressó fimmtudagskvöldið... við ætlum ekki að kynna þau... sjá hvernig þau fílast innan um coverið ..it could be nice
:: Dori :: 16. Feb 2005
Eftir strembnar vikur tekur Vax sér frí þessa helgina... nordica og borgin gengu vel... og þökkum sem hlýddu..verið að semja á fullu og frumflyjum eitthvað 24feb á Hressó ... semsagt hvíld um helgina ..
:: Dori :: 10. Feb 2005
hresso gekk vel og það verður gaman að telja í Fimmtudaginn 24feb... þessa helgi erum við einungis að spila í einkasamkvæmum
Hótel Nordica á föstudag og Hótel Borg á laugardag. Sjáumst síðar...
:: Dori :: 02. Feb 2005 ... 11feb var verið að bóka okkur á Nordica hótel til að spila fyrir 3-400 manns.... erum búnir að gera skiptidíl við stóra fatabúð hér í bæ um að fata okkur upp.... eigum bókað stærsta stúdíó landsins um helgina... komnir með grunn af 3 nýjum lögum sem við höldum að séu að virka.... núna vantar okkur bara upptakara ... það kemur í ljós á morgun ... annars Hressó á Föstudag á slaginu tíu... allt gefið í botn... hvar endar þetta...
:: Dori :: 25. Jan 2005 föstudaginn 4 feb hressó stúdentapartý Vöku laugardaginn 12 feb Hótel Borg Pressuball fimmtudaginn 24 feb hressó Útgáfuparty