 |
 |
 |
 |
|
 |
 |
 |
|
|
Gestabókin
mín!
skrifaðu í bókina mína eða skoðaðu hana með
því að smella hér
Júlíus Orri - 22. júlí '06 Blessaður Benidikt, hérna ég bara ákvað aðeins að kíkja á síðuna, fyrst ég er í tölvunni, en mikið rosalega er þetta flottur gullpeningur sem þú fékkst og bara sjáumst vonandi bráðlega:D og skila jveðju til mömmu og pabba
bæjó
Þyrí og Sæsi frændi - 14. júlí '06 Hæ hæ - rosalega ertu orðinn öflugur í boltanum frændi... okkur hlakkar til að hitta þig og mam þegar við komum frá dk (26.7)
Hilsen pilsen
Helgi frændi - 4. júlí '06 Ég vissi að við næðum saman áfram Valur. Mitt lið frá 1970. Frábært að fá að sjá frænda minn í Valsbúningi. Minn draumur rætist í þér.
Kv. Helgi ömmubróðir
Elvar Máni og fjölsk. - 16. júní '06 Takk fyrir síðast það var ekkert smá gaman í grllinu hjá ykkur.... hlakka til að hitta þig aftur....
kv. Elvar Máni
Þóra Magnea - 5. júní '06 Hæ hæ, Benó og fjölskylda!
Rosalega gaman að sjá allar nýju, flottu myndirnar!
Gangi þér rosalega vel í fótboltanum og vonandi sjáumst við sem fyrst!
álfheimagengið - 5. júní '06 Til hamingju með flotta gullpeninginn!!! Meistaraferillinn byrjar snemma:) Hvernig væri svo að hittast?? Barnið verður komið úr bumbunni áður en við vitum af og við þurfum alveg að sjá bumbuna einu sinni áður;)
knús og kossar til ykkar...
sigga amma - 3. júní '06 Ja hérna hér. Ekkert smá flottur peningur. Mér finnst þú vera mjög duglegur að keppa svona marga leiki. Þú ert líka flottur í þeim rauða. Kossar og risastórt faðmlag í tilefni dagsins.
Þín Sigga amma
Sigga Ella - 3. júní '06 Hæ hæ! Æðislegar myndir af ykkur litlu fjölskyldunni :) Bumban alveg eins og bumbur eiga að vera og þið öll svo falleg :)
Já og takktakk fyrir pössunina um daginn. Snæfríður á örugglega eftir að heimsækja ykkur eitthvað meira og við líka nottlega ;)
Sjáumst vonandi sem fyrst, kveðja, Sigga, Hallur og Snæfríður Hekla
Magga snyrtó - 29. maí '06 Hæ Benedikt! Rosalega ertu flottur strákur og æðisleg síðan þín. Bið að heilsa bumbubínunni þinni.
Bestu kveðjur frá Englandinu...
Anna Kristín - 28. maí '06 Hæ hæ!
Ekkert smá skemmtileg síða..Gaman að skoða allar þessar myndir...
Verð nú að segja að Benedikt er svoldið mikið líkur móður sinni:)
Bestu kveðjur úr Vesturbænum..
Hansína M Kemp Halldórsdóttir - 25. maí '06 Elsku dúllinn minn mikið var gaman að heyra í þér í símanum, pabbi þinn var bara alltaf að trufla okkur . Rosalega voru fínar myndirnar sem eru komnar á heimasíðuna. Mikið hlakka ég til að fá að sjá þig, þá getur þú sungið og flautað fyrir mig. Guð geymi ykkur, flott er að verða stóri bróðir, við hlökkkum til. Hansína ömmusystir.
sigga amma - 23. maí '06 Ja það var mikið að nýjar myndir komu. Alltaf jafn skemmtilegt að skoða herlegheitin. Þið þurfið að fara að gefa út bók. Hún gæti t.d. heitið Sögur úr Eskihlíðinni eða bara Sögur af Benó og vinum. Hafið það gott elskurnar mínar og eitt að lokum. Ömmu og afa þykir óskaplega vænt um ykkur.Og þar hafið þið það:)
Kossar og knús
Sigga amma
álfheimagengið - 14. maí '06 vúhú!!! loksins nýjar myndir...gaman, gaman!! Ótrúlega ertu orðinn stór Benedikt, enda kannski ekki skrítið þegar líða fer að því að þú verðir STÓRI bróðir:)
knús og kossar...TogS og SMS
Arnar Freyr Halldórsson - 8. maí '06 Hæ hæ var gaman um helgin hún var fín hjá mér ég fór tíl Akureyrar og var að hitta hálf afa minn,Óla frænda minn og Elínu systir hans Eggerts ég fór í sund í
Akureyrarsundlaug. Bless með stæl varúlva væl
mamma lamma - 5. maí '06 hæ rjóminn minn ...agalegt að sjá hversu löt mamma og pabbi eru að setja inn myndir...en eins og þú veist þá elskum við þig svoooo.. mikið að það bætir vonandi upp allt saman .stefnum á að setja nýjar myndir um helgina ..hlakka til að sjá þig á eftirknúsikallinn minn .
Addi frændi - 21. apr. '06 Hæ hæ var gaman um páskana. Þú varst rosa flotur í jakafötunum. Bless bless
kv addi
jenny - 3. apr. '06 Hey!
Did U go to Beata & Jorges wedding?? I cant find them...
Inga Birna - 3. apr. '06 Hæ sæti :)
Það var mikið að maður fékk að sjá þig loksins. Þú ert algjör engill elsku krúttið mitt. Mamma þín má sko alveg vera montin af þér. Næst þegar ég sé þig þá hvíslarðu að mér þetta með nafnið á nýja barninu.. tíhíhí
Bergdis fraenka i Svitjod! - 26. mars '06 eg sakna tin elsku besti fraendi i heimi! hlakka til ad sja tig. endalausir kossar og biljon skriljon knus:) knusadu mömmu og pabba fra mer;) kv. bbs
kristrun yr - 22. mars '06 hei amma og afi
Begga frænka - 21. mars '06 Halló kæra fjölskylda
(Virðulegt,ha) hvernig væri nú að setja inn myndir af þessari fjölskyldu og það í allri sinni dýrð.
Mér finnst komi tími til!
Kossar og knús
Begga frænka
Guðný Björk - 9. mars '06 Hæhæ sæti!!!
Alltaf gaman að kíkja á síðuna þína og skoða myndir af þér og þinni fallegu fjölskyldu!!
Kv Guðný og Máney
Hansína ömmusystir - 24. feb. '06 Hæ elsku kallinn . Gaman var nú að sjá ykkur þarna fyrir sunnan . Og takk fyrir síðast . Það var aldeilis gott að fá að borða hjáykkur . Jæja þá verður þú bara bráðum stóri bróðir það verður nú gaman. Guð geymi ykkur öll. ömmusystir
tobba, sæþór og saga maría - 22. feb. '06 komið gott af vondu...nú barasta VERÐUM við að fara hittast:) Saga María orðin eins árs og Benedikt sjálfur að verða STÓRI bróðir!!!
Alveg magnað elskurnar...til hamingju með það...gladdi litlu hjörtun okkar mikið!!
knús og kossar þar til alveg svakalega fljótt;)
Addi frændi - 20. feb. '06 HÆ HÆ ÞETTA er ADDI FRÆNDI ÉG VILDI BARA KÍKJA Á SÍÐUNA HÚN ER ROSA FLOTT EF ÞÚ VILT KÍKA Á MÍNA BIDDU ÞÁ MÖMMU EÐA PABBA AÐ HJÁLPA ÞÉR BÆ BÆ
Sara og Jenný Una - 18. feb. '06 Hæ hæ sæta fjölskylda. Nú er alveg kominn tími til að fara að hittast og ekki bara segja það, heldur líka láta verða að því.Kannski bara á morgun.Síminn okkar er 6925082 og endilega hringið þegar þið eruð laus. Ástarkveðja,Sara og Jenný Una
Inga Birna og Hektor - 13. feb. '06 Hæhæ Benedikt,
þú ert ekkert smá myndarlegur strákur og hefur alla fegurðinna frá mömmu þinni.
Rosa gaman að fletta í gegnum albúmin og fá að fylgjast með :)
Þóra Magnea frænka - 9. feb. '06 Alltaf jafn gaman að skoða heimasíðuna þína stóri strákur! Hlakka til að sjá fleiri myndir en þær eru alltaf svo flottar og skemmtilegar hérna hjá þér! Knús á línuna ;*
Inga Birna - 8. feb. '06 Halló halló kæra fjölskylda sem fer stækkandi !
Innilega til hamingju með bumbubaunina elskurnar mínar, vonandi gengur þetta allt eins og í sögu :)
Knús til ykkar allra og Benedikt - þú verður sko pottþétt besti stóri bróðir í heimi !
sigga amma - 26. jan. '06 Elsku Benedikt plús pabbi og mamma á bænum!
Mikið er ég glöð að geta skoðað heimasíðuna þína þegar mér sýnist. Þá fer ég alltaf í svo gott skap. Ég sakna þín samt voða mikið en við eigum nú samt eftir að hittast, vonandi fljótlega. Hérna er svo einn brandari sem þú getur lært.
Benedikt: "Pabbi, eignast kýr börn?" Pabbi: "Jú auðvitað". Benedikt: "Ég hélt það líka en mamma segir að þær eignist kálfa!" Tihí:)
Inga Birna - 6. jan. '06 Elsku fjölskylda.
Það er alltaf jafn gaman að skoða síðuna ykkar. Alltaf nóg skemmtilegt um að vera hjá ykkur og ekki spilla myndirnar fyrir því þið eruð jú alveg hrikalega myndarleg.
Til hamingju með mömmu gömlu í gær (hehe,heppin ég að vera nokkrum dögum yngri en hún)
Knús og kiss
(p.s. það er fullt herbergi af skemmtilegu strákadóti í Þórðarsveignum ef þú vilt koma í heimsókn með mömmu Benedikt)
tobba, sæþór og saga maría - 5. jan. '06 Gleðilegt nýtt ár essskurnar og takk fyrir það gamla...viss um að 2006 geymir fullt af stórum og merkum atburðum fyrir ykkur í vasanum sínum!!!
knús og kossar, álfheimagengið
Hansína ömmusystir - 4. jan. '06 Elsku besti Benedikt minn. Gleðilegt nýtt á og takk fyrir liðna árið. Eru bara tæp tvö ár þangað til þú ferð að læra að lesa og skrifa, ja hérna. Rosalega hefur þú haft mikið að gera í jólaog áramótafríinu en flottar myndir. Kysstu mömmu og pabba frá mér til hamingju með nýja árið og takk fyrir það gamla. Guð geymi ykkur. Hansína ömmusystir
sigga amma - 3. jan. '06 Elsku litla fjölskylda!
Bestu þakkir fyrir síðast. Það er aldeilis gaman að skoða myndirnar og lesa þennan skemmtilega texta.
Að hugsa sér að allt þetta sé liðið á svo skömmum tíma.
Svona er þetta nú samt.
Heyrðu Benedikt, getur það verið að þú verðir fimmmmmmmmm á þessu ári? Nú dámar mér! Þú sem ert rétt nýfæddur.
Getur verið að tíminn líði allt of hratt á gervihnattaöld?
Kossar og knús frá Siggu ömmu og Pella afa
Elvar Máni - 23. des. '05 Hæ hæ og gleðileg jól. Ég og pabbi vorum að skoða síðuna ykkar alltaf jafn skemmtilegt. Bið að heilsa þér Benedikt og sjáumst fljótlega
kveðja Elvar Máni
Sigga og Snæfríður - 13. des. '05 Hæhæ kæra fjölskylda. Æðislegar myndir af ykkur og auðvitað sérstaklega af þér Benedikt ;) Hälsningar frá Laugaveginum, vonandi sjáumst við eitthvað fyrir jól hehe :)
tobba, sæþór og saga maría - 11. des. '05 flottar nýju myndirnar:)
Þetta hefur verið ævintýri líkast þarna í húsinu kenndu við kram!
Hei og rosalega áttu flott náttföt;)hehehe
Njóttu svo aðventuundirbúningsins...hann er æði!
knús og kram....!
Jenny från Sverige - 8. des. '05 Sooon xmas .... Merry Merry!
God Jul och Gott Nytt år Tutti!
Kisses//Jenny
sigga amma - 7. des. '05 Elsku, elsku, besti Benedikt!
Það er alltaf sama fjörið hjá þér og þínum. Verst að geta ekki verið með í að dilla, dilla. Þú veist nú að Sigga amma hefur svo góðan og stóran rass í það. Knúsaðu nú bæði pabba og mömmu fyrir að vera bestu foreldrar í heimi og svo færðu stórt knús og þúúúúúúúúússund kossa frá Siggu ömmu.
Myndirnar og sagan eru rosahlott.
Hansína ömmusystir - 7. des. '05 Sæll elsku Benedikt minn. Það er aldeilis gaman að sjá nýju myndirnar af þér og sagan af þér þú hefur aldeilis mikið að gera . Svo jólin eru bara að koma til Reykjavíkur eins og hérna fyrir austan, það verður aldeilis gaman að fá að sjá ykkur um jólin. Jæja elsku litla fjölskylda Guð geymi ykkur. Kveðja ömmusystir
Bryndís Tinna Hugadóttir - 1. des. '05 Hæ hæ stóri frændi.
Ég klukkaði þig, þú getur séð meira um það á síðunni minni.
Kær kveðja
Bryndís Tinna jólastelpa
Einar Ása Elvar Máni og litla daman - 17. nóv. '05 Hæ hæ vorum að kíkja á síðuna s
þína, vildum ekki vera dónaleg og fara án þess að kvitta
kveðja Fjölskyldan á Holtinu
Linda og Inga nemi (Sólhlíð) - 16. nóv. '05 Þetta er rosalega flott síða hjá þér Benedikt. Ein sú flottasta sem við höfum séð. Það eru nokkrar myndir þarna sem okkur langa dálítið í.
Guðrún Jóna Þrastardóttir - 1. nóv. '05 hæhæ flott síða
Sædís Erla og fjölskylda - 28. okt. '05 Hæ frændi
Til hamingju með afmælið um daginn. Við verðum nú að fara að hittast.....
Bestu kveðjur, Sædís Erla
Inga Birna - 28. okt. '05 Halló sætastur!
Innilega til hamingju með afmælið þitt um daginn- þetta var ekkert smá flott veisla hjá ykkur. Mikið óskaplega er hún mamma þín myndarleg (það var nú löngu vitað)
Hafið það gott elskurnar.
Knús og kiss
mamma - 27. okt. '05 Ég elska þig!!! fallegasti í heimi !!!
Ég er heima núna veik og þú ert í leikskólanum...en ég sakna þín bara svo mikið!! hlakka til þegar þú kemur heim. Vildi bara segja þér að þegar ég hugsa um þig þá brosi ég alltaf...þegar eitthvað bjátar á þá er nóg fyrir mig að hugsa um þig þá veit ég að allt verður í lagi því þú ert gullmolinn minn. love you þín mamma lamma.
Hansína Steinunn Kemp - 24. okt. '05 Hæ Hæ elsku stóri frændi minn!
Mikið hlakka ég til þegar þið komið austur.Þá getum við kannski spjallað eitthvað... Ég er orðin svo stór stelpa. Ég og mamma biðjum að heilsa í bæinn, hafið það sem best
Hansína Steinunn og Mútter
Árný Hlín - 21. okt. '05 hæhæ ákvað að kíkja aftur á síðuna og hún er svona svakalega flott :D sjáumst á manudaginn;)
jólasveinnin - 19. okt. '05 p.s.til hamingju með afmælið
jólasveinnin - 19. okt. '05 Hó hó hó.voða ertu duglegur dreingur.guð blessi þig
Sveina - 19. okt. '05 sæt síða :D
Begga frænka - 6. okt. '05 TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ.
Frábært að fylgjast svona með ykkur, frábær texti það er alveg hægt að lifa sig inn í þetta með ykkur. Hafið það sem allra best
Kveðja
Begga frænka
tobba, sæþór og saga maría - 6. okt. '05 að rúlla í gegnum myndirnar var bara eins og að koma aftur í ammælið!! Snillingar þið:)
knús og kossar til ykkar sætasta fjölskyldan okkar.....gengið í álfheimunum!
sigga amma - 6. okt. '05 Elsku fjölskylda!
Mikið er gaman að sjá þessar fallegu myndir. Svo er líka svo gaman að lesa textann. Það er ótrúlegt elsku Benedikt að þú sért orðinn fjögurra ára. Til hamingju með það.
Kossar og knús frá Siggu ömmu
valla äi Finnlandi. - 3. okt. '05 Elsku Benedikt. 03.10 05
Til hamingju með afmælið..grattis grattis ja må han leva.!!!...Sendi pakka til þín sem kemur með stóru flugvélinni í dag. Vonandi borðaðir þú ekki of mikið af köku og gúmmulaði í gær...kannski koma bráðum nýjar myndir inn á heimasíðuna...ég kíki alltaf annað slagið spennt að sjá eitthvað nýtt....Hvernig er þetta með þig Villi pabbi???hm..hm.. Kær kveðja til ykkar allra.
ástarkveðja.
Valla í Barösundinu í Finnlandi
ömmusystir og familý Eskif. - 3. okt. '05 Hann á afmæli í dag ,hann á afmæli í dag hann á afmæli hann Benedikt hann á afmæli í dag. Til hamingju með afmælið elsku vinurinn . Við fréttum það að það var ofsafjör í afmælinu þínu í gær mikið hefði verið gaman að vera þar, en svona er þetta við erum bara fyrir austan og þú fyrir sunnan . Vonandi verður ekki lengi að bíða þangað til við sjáumst og þú sjáir litlu frænku þína Guð geymi ykku öll.
Hansína ömmusystir
ömmusystir og familý Eskif. - 3. okt. '05 Hann á afmæli í dag ,hann á afmæli í dag hann á afmæli hann Benedikt hann á afmæli í dag. Til hamingju með afmælið elsku vinurinn . Við fréttum það að það var ofsafjör í afmælinu þínu í gær mikið hefði verið gaman að vera þar, en svona er þetta við erum bara fyrir austan og þú fyrir sunnan . Vonandi verður ekki lengi að bíða þangað til við sjáumst og þú sjáir litlu frænku þína Guð geymi ykku öll.
Hansína ömmusystir
tobba, sæþór og saga maría - 3. okt. '05 Til hamingju með ammmælið sætilíus:) Takk fyrir okkur í gær, erum ennþá að jafna okkur eftir kökuátið!!!!!!!
knús og kram, álfheimagengið
Stína - 3. okt. '05 Til hamingju með afmælið elsku Benedikt. Kossar og knús til ykkar allra - kv Stína
tobba, sæþór og saga maría - 29. sept. '05 takk fyrir flott boðskort esssku benedikt!
við hlökkum ekkert smá til að koma í ammmælið þitt, erum búin að velja kjólinn og ákveða ammmælisgjöfina:) Rosa gaman!
knús og kossar, sjáumst á laugardag.......
mamman - 28. sept. '05 mússí, kússí bússí rússí!!!
mamma þín elskar þig svo mikið!!!
nú erum við búin að telja dagana í afmælið í meiri en mánuð og loksins fer að koma að því. þér hlakkar svo til að það er yndislegt að horfa á þig þessa dagana . þín mammalamma tamma.
sigga amma - 26. sept. '05 Elsku stóri strákur!
Hún amma þín saknar þín voða mikið. Það var nú rosalega gaman að vera hjá þér um daginn og fara með þér út að borða og fá að sofa í rúminu þínu og fá að knúsa þig og kyssa og fá að kubba með þér og syngja með þér og........
Kossar og stórt faðmlag.
Sigga amma
Berglind og Sævar Thor - 23. sept. '05 Sakni sakni sakn... ég er á leiðinni - á leiðinni - alltaf á leiðinni - en svo er mamma þín bara alltaf að vinna þegar ég er á leiðinni. Þannig að við hittumst nú vonandi í ammlinu þínu sem er bráðum.
Hilsen, Berglind og barn
Elvar Máni, Ása og Einar Eir - 30. ág. '05 Hæ hæ og takk fyrir síðast.
Gaman að skoða síðuna þína rosalega flott. Sjáumst í leikskólanum og mamma og pabbi biðja að heilsa mömmu þinni og pabba þínum
Kveðja Elvar Máni og foreldrar
tobba, sæþór og saga maría - 26. ág. '05 Takk fyrir samveruna síðasta föstudagskvöld elsku fjölskylda:) Maður skilur alltaf við ykkur með bros á vör....
knús og kossar
Þóra Magnea - 15. ág. '05 Hæ, Benedikt!
Ég kíki alltaf reglulega á síðuna þína, en hef aldrei kvittað í þessa fínu gestabók, svo ég geri það hér með! Betra seint en aldrei!
Alltaf gaman að skoða flottu myndirnar þínar, enda ertu svo duglegur og sætur strákur!
Bið að heilsa þér og mömmu þinni og pabba :)
sigga amma - 14. ág. '05 Úpps!
Heyrðu það á að vera loga í staðinn fyrir lýsa.
Fyrirgefðu og lærðu það rétt.
Sigga amma
sigga amma - 14. ág. '05 Sæl þið öll í fjölskyldunni!
Þetta eru nú meiri ævintýrin hjá ykkur alltaf hreint.
Já Hallgrímskirkja er nú voðalega stór og þvílíkar bjöllur. Hann Hallgrímur Pétursson sem kirkjan heitir eftir bjó til bæn sem kemur hér á eftir. Kannski þú kunnir hana?
Láttu nú ljósið þitt
lýsa við rúmið mitt
hafðu þar sess og sæti
signaður Jesús mæti.
Kossar og knús frá Siggu ömmu, Pella afa og Konna.
ps.
Það er líka gaman að sjá að hann Tómas er kominn á heimasíðuna. Sá er nú aldeilis rogginn með sig.
Hansina frænka - 3. ág. '05 Sæll elsku Benedikt. Ég ætla að biðja þig að kyssa pabba þinn til hamingju með daginn . Ég er búin að reyna að hringja í hann og hann vill bara ekki svara mér kannski er ég með vittlaust símanúmer. Elskan mín guð geymi ykkur og passi. Þín frænka Hansína
Begga frænka - 3. ág. '05 Ofsalega fínar myndir hjá ykkur gaman að geta fylgst með ykkur og sjá hvað er í gangi. Benedikt þú ert æði!!
Takk fyrir það
Sjáumst
Begga
sigga amma - 27. júlí '05 Elsku litli Benedikt!
Nú ert þú kominn heim til mömmu og pabba í Eskihlíðinni. Ég veit að þú ert "ossalega" glaður að vera kominn heim enda sagðir þú mér að mamma og pabbi elskuðu þig svo mikið. Hún ama þín saknar þín nú samt og sendir þér þúsund kossa og knús og hún vill segja þér að það var líka "ossalega" gaman að fá þig í heimsókn. Þakka þér fyrir að bera í bæinn svona mikinn arinvið því að nú þurfum við afi þinn bara að kveikja upp í arninum og setjast síðan niður og slappa af.
Hittumst hress og kát úti í buskanum.
Þín Sigga amma
ps.
Gefðu pabba og mömmu rosastóran koss.
Norman Jón karlsson - 26. júlí '05 flott síða Benedikt
Inga Birna - 26. júlí '05 Hæ sæta fjölskylda.
Það er alltaf jafn gaman að skoða myndir af ykkur- þið eruð svo sæt og æðisleg. Hlakka til að hitta þig Erla mín. Hafið það gott
Stína - 20. júlí '05 Hæ Benedikt, það er aldeilis að þú hefur stækkað í Finnlandinu. Held ég verði að kíkja á þig og sjá hvort ég þekki þig aftur ;)
Knús í bæinn
Hansina frænka - 19. júlí '05 Elsku Benedikt minn . Loksins komu nýjar myndir. Þú ert nú rosa sætur og góður að hjálpa Bryndísi að taka upp pakkana. Svo ferð þú bara að koma og Bryndís líka það verður ofsalega gaman. Ég hlakka mikið til að fá að knúsa og kyssa þig elsku frændi minn. Bið að heilsa mömmu og pabba. Og guð geymi ykkur. Þín frænka Hansina
valla 15.07 - 15. júlí '05 Halló Benó....
Þakka þér fyrir síðast. Það var nú aldeilis gaman að hafa þig hérna í Finnlandi. Næst þegar þú kemur verður þú að vera marga marga daga. Þú ert fyndinn og skondinn strákur, með ákveðnar skoðanir.....Hafðu það gott og skilaðu góðri kveðju til mömmu og pabba. Kram og kossar....
þú mannst vonandi núna að ég heiti VALLA!!!!!!
Tobba, Sæþór og Saga María - 8. júlí '05 Takk fyrir póstkortið esssku fjölskylda...gott og gaman að heyra að þið hafið það huggulegt í sumarfríinu.
Annars er orðið ALLTOF langt síðan við hittumst og við eigum meira að segja eftir að knúsa skólasnillingin hana móður þína til hamingju með útskriftina þannig að við pöntum ykkur í mat til okkar stuttu eftir að þið komið heim...ókei???
knús og kossar, álfheimagengið
Bíbí frænka - 6. júní '05 - 25. júní '05 hæ sæti, vá sko hvað ég sakna þín mikið. bráðum ertu að koma hingað í heimskókn, kannski eftir svona 10 daga eða einhvað:) en hlakka allavega mjöööög mikið til að sjá þig og elska þig endalaust, bæbæ
- 12. júní '05 Skoðaði heimasíðuna þína í dag aldeilis fín, flottar myndir, gaman að sjá leikskólann þinn. Vonandi ertu hress og sprækur og farinn að undirbúa reisuna miklu til Finnlands, Ég er búin að panta gott veður. Kramar Valla.
Tobba, Sæþór og Saga María - 6. júní '05 vá hvað þú ert orðinn endalaust stór....og fallegur. Nú gengur þetta ekki lengur, verðum að hittast sem fyrst!!! knús og kossar til allra....álfheimagengið
Inga Birna Barkardóttir - 3. júní '05 Hæ sæti. Þú ert nú meiri töffarinn.
Knúsaðu nú hana mömmu þína frá mér. Mikið rosalega var nú gaman að heyra í henni í gær- það er orðið allt of langt síðan síðastþ Mikið er ég farin að hlakka til að hitta hana.
Hafið það gott sæta fjölskylda
Kv.Inga B
Sigga amma - 2. júní '05 Elsku litla fjölskylda!
Mikið ósköp er gaman að sjá hvað er gaman hjá ykkur. Allir að skemmta sér saman því það er svo gaman. Siggu ömmu finnst þú vera orðinn svo stór að hún veit nú bara ekki hvar þetta endar. Ekki flýta þér svona mikið að stækka elsku vinur.
Kossar og risastórt faðmlag frá ömmu.
Bíbí frænka - 16. maí '05 - 16. maí '05 Halló sveitastrákur... I miss you so much, en núna ertu í sveitinni hjá ömmu þinni og afa og það er örugglega æðislegt!(nema það að ég get ekki hitt þig) Mér finnst vera heil eilífð síðan ég sá þig seinast. Vonandi kemuru brátt heim og ég vona að ég fái að passa þig fljótlega:) Ég elska þig, engillinn minn! Bæjó
Tobba, Sæþór og Saga María - 3. maí '05 Hellú....fallega fjölskylda:)
Takk fyrir okkur á laugardaginn, rosa BBQ veisla...ekkert smá gaman og frábært að koma til ykkar í nýju íbúðina og eiga kósí kvöldstund í góðum hópi eðalfólks.
Vonandi ertu hressari stóri vinur og við erum viss um að Kolli litli krókódíll hefur hresst þig við.
Sjáumst fljótt....knús :)
Hallur, Sigga & Snæfríður - 2. maí '05 Hæ og hó
það var alveg frábært í grillveislunni hjá ykkur um daginn, pabbi þinn kann sko að grilla :) Bið að heilsa og vonandi hittumst við fljótt aftur!
BBQ...-30. apríl ´05- - 30. apr. '05 hæ sæti...það var gaman að vakna með þér í morgun og horfa á barnatímann með þér og þú ert líka svo skemmtilegur og geggt fyndinn! see you later, fríðastur:)
bíbí... - 24. apríl ´05 - 24. apr. '05 ég sakna þín svo mikið... er ekki búin að sjá þig í 2 heila daga... það gengur ekki! þú ert svo fyndinn og fríður:) elska þig, elskan mín! p.s. ég hlakka óendanlega til að fara með þér í sumarbústaðinn:)
Stína - 22. apr. '05 Gleðilegt sumar elsku Benedikt!
Það hefur aldeilis verið gaman í húsdýragarðinum í gær. Hlakka til að hitta ykkur í blíðunni í sumar ;)
tobba, sæþór og saga maría - 22. apr. '05 Gleðilegt sumar elsku vinir og takk fyrir veturinn:) Ýkt skemmtilegar nýju myndirnar, bensó alltaf flottastur!!
knús og kossar
sigga og pelli - 21. apr. '05 Elsku Benó og allir í fjölskyldunni!
Við sendum okkar bestu sumarkveðjur til ykkar og erum þakklát fyrir að "eiga" ykkur krúsíndúllur.
Kossar og knús í tilefni dagsins
Sigga amma og Pelli afi
Hansína ömmusystir - 21. apr. '05 Sæll elsku Benedikt, og GLEÐILEGT SUMAR og takk fyrir veturinn. Vonandi sjáumst við sem oftast í sumar. Bið að heilsa mömmu og pabba Guð geymi ykkur. ÖMMUSYSTIR
Mikki Refur - 6. apríl ´05 - 6. apr. '05 Hæ Benedikt, takk fyrir seinast, krúttið mitt og takk fyrir að vera svona skemmtilegur lítill gaur:)
Þetta er æðisleg síða, gangi þér vel með hana og vonandi sjáumst við bráðlega.
Begga frænka - 4. apríl ´05 - 5. apr. '05 Hæ elskan mín, ég langar bara að segja hvað ég elska þig mikið og sakna þín alltaf. Samt sé ég þig næstum því á hverjum degi:)
Það var mjög gaman að passa þig um helgina, hlakka til að passa þig aftur!
Love you sæti, bæbæ
Hansína ömmusystir - 30. mars '05 Aldrei áður skrifað vittlaust nafnið þitt það kom að því . Auðvitað heitir þú BENEDIKt
KOSSSSSSSSSSS sú sama
Hansína ömmusystir - 30. mars '05 Elsku Benidikt mamma og pabbi
Mikið var gaman að sjá ykkur á páskunum. Þú orðinn svo duglegur og stór og getur teiknað svo mikið og fínnt. Ég frétti að þú hefðir farið í Húsdýragarðinnn með Bryndísi Tinnu , það hlýtur að hafa verið gaman, þið hafið örugglega verið fallegust og best. Bið Guð að vera með ykkur og gæta ykkar. Þess óskar Hansína ömmusystir
Hansína ömmusystir - 19. mars '05 Elsku besti Benedikt til hamingju með nýju íbúðina og flotta herbergið þitt. ÆÆ þetta eru nú meiri bólurnar sem þú hefur fengið, jæjæ en þá er það búið. En vonandi hitti ég ykkur þegar við Bjössi komum suður. Guð geymi ykkur. Bæ Bæ
þín ömmusystir
Lotta - 16. mars '05 Hæ Benedikt!
Til hamingju með nýja herbergið.
Ég frétti að þú værir svo duglegur að sofa aleinn í því.
Saka fínar myndir af þér og fjölskyldunni þinni, og spennandi dót sem þú átt. Vonandi ertu duglegur að leika með það. Knús og kossar frá Lottu sem er með mömmu í snyrtiskólanum
tobba, sæþór og saga maría - 15. mars '05 Til hamingju með að vera flutt fallega fjölskylda, hlökkum til að kíkja í heimsókn í nýja slottið:)
knús og kossar, familían í álfheimunum
Sigga amma - 9. mars '05 Til hamingju með að vera fluttur í Eskihlíðina elsku vinur. Það er nú aldeilis flott að þú skulir vera kominn með sérherbergi.Kannski fæ ég að sofa í því seinna.
Kossar og knús til pabba og mömmu.
Stubbaknús til þín.
Sigga amma
Inga Birna Barkardóttir - 3. mars '05 Hæ hæ.
Hann er nú meira krúttið þessi litli... hann er rosa líkur mömmu sinni :)
Kv.Inga Birna
Stína - 25. feb. '05 Hæ, hæ sólargeisli! Flottar myndirnar af þér í rebbabúningnum. Nú fer ég að kíkja á þig þegar þú verður fluttur og skoða nýja herbergið þitt. Koss og knús til allra - Stína
Rósa (líka gömul skólasystir-) - 23. feb. '05 Svona Sér maður þá hvað gamlir skólafélagar eru að gera í gegnum börnin-) við vorum að kíkja á Signýar börn og sáum nafnið hennar mömmu þinnar og ákváðum að kíkja.. alla vega gangi ykkur allt í haginn!! Voða sætur strákur sem þú átt.. kær kveðja Rósa og dætur (www.barnaland.is/barn/12513
Hansína ömmusystir - 20. feb. '05 Hæ elsku Benedikt minn . Það er aldeilis að þú ert orðinn duglegur að teikna . Ég held að þú getir alveg teiknað mynd af mér .´Ömmu systir hefði orðið hrædd ef hún hefði séð rebba á öskudaginn. . Rosalega var flottur bolluvöndurinn þinn , en bollaðir þú ekki pabba þinn . Jæja bæ, bæ , guð geymi ykkur Hansina ömmusystir
Signý gamla skólasysstir! - 19. feb. '05 Hæ hæ töffari rákumst á slóðina á síðuna þína á síðuni hjá Birtu maríu! Og ég segi nú bara Vá hvað þú átt ótrúlega flotta síðu það er greinilega einhver svakaklát í tölvumálum á þínum bæ!!!! Og tíminn fljótur að líða við mútta þín höfum sennielga ekki sést síðan gaggó kláraðist og hvað þá að ég vissi að hún ætti þennan gullfallega strákling:/
En allavega byð ég kærlega að heilsa og vonandi hittumst við einhvertíma á förnum vegi!! Kvaðja Signý og strákarnir hennar!! Róbert Óliver og Jason Bjarni (báðir með heimasíðu á barnalandi!!)
Tobba, Sæþór og Saga María - 14. feb. '05 Halló fallega fjölskylda:)
Takk fyrir heimsóknina um helgina og takk fyrir fallegu gjöfina sem þið gáfuð litla molanum okkar.
Rosalega ertu flottur Mikki refur...alveg ekta Benedikt:)
Knús og kram TogS + SM
Sigga amma - 11. feb. '05 Sæll elsku Benedikt!
Þetta eru nú fínu myndirnar af ykkur fjölskyldunni. Þú ert svo duglegur að leika allskonar persónur. Ég verð svo glöð þegar ég sé þig á myndunum af því að þú ert svo skondinn. Kannski verður þú leikari þegar þú verður stærri og þá skal ég sitja á fremsta bekk og horfa á þig og klappa fyrir þér.
Kossar og knús handa allri fjölskyldunni
Sigga amma
Bryndís Tinna litla frænka - 10. feb. '05 Hæ stóri frændi. Það er alltaf jafn gaman að skoða síðuna þína, hún er ekkert smá flott og myndirnar af þér eru æði spæði. Það er nú eins gott að þessir foreldar okkar fara að láta okkur hittast maður, þetta gengur ekki lengur.
Koss og knús.
Kveðja
Bryndís Tinna
P.S ég fékk tígranáttfötin mín í CogC búðinni sem er held ég í fálkahúsinu:)
Þyrí frænka - 9. feb. '05 Rosalega ertu flottur strákur... við Sævar verðum að fara að kíkja við... gefðu mömmu koss frá mér.
Hallur - 5. feb. '05 Hæ hæ og hó hó... Alltaf gaman að skoða síðuna þína !
Hlakka til að fá þig og familíuna í heimsókn!
Tobba, Sæþór og litla prinsessan - 21. jan. '05 Rosalega flottar myndir af ykkur fallegu fjölskyldu.....
Farið vel með ykkur essskurnar og hlökkum til að hitta ykkur.
knús og kossar....
Sigga amma - 18. jan. '05 Elsku Benedikt ömmustrákur! Mikið eru myndirnar á síðunni þinni fallegar. Hún amma þín er alltaf að skoða þær. Það gerir hana svo glaðsinna. Hm? Hvað þýðir það nú? Jú, hún kemst í svo gott skap þegar hún sér þig. Vertu svo duglegur að syngja og æfa ný lög og fáðu svo pabba þinn til þess að ljúka við lagið um Gömlu konuna af því að það er svo skemmtilegt lag.
Kossar og stubbaknús frá Siggu ömmu
Berdís frænka:) - 12. jan´05 - 12. jan. '05 hæhæ, ég verð bara að segja að mér fannst ekkert smá krúttlegt um daginn þegar þú sagðir upp úr þuru: ég elska þig og þú ert besta frænka í heimi:) ooo þú ert svo mikil dúlla! elska þig. kv. Bíbí
Inga Birna Barkardóttir - 10. jan. '05 Hæ elsku fjölskylda.
Gleðilegt ár og allt það. Bara að kvitta fyrir mig, voða gaman að kíkja aðeins á litla krúttið ykkar ;) Verðum nú að fara að hitta Grafó-gengið fljótlega-við erum bara lélegar.
Vonandi sjáumst við bráðlega.
Inga Birna
Hansína frænka - 8. jan. '05 Hæ Hæ, þetta eru nú aldeilis fallegar myndir.Eins og ég segi alltaf öll okkar family er svo rosalega falleg. Benedikt minn og þú svona flottur í jakkafötum ekki hef ég séð þig áður í þeim. Þú hefur aldeilis fengið mikið í jólagjöf svona flottar gjafir. Jæja það er víst komin háttatími fyrir gamla frænku. Guð geymi ykkur öll. Hansina ömmusystir
Erla Signý - 5. jan. '05 Hæhæ sætastur, langaði bara að óska þér til hamingju með mömmu í dag....
Bergdís Brá frænka - 23. des. '04 hæ sæti! ég sakna þín rosa mikið því nú ertu á egilsstöðum, en ég veit að það er svaka gaman hjá þér! ég hlakka til að halda jólin með þér jólaengillinn minn! elska þig ástin mín! jólakveðja bíbí!
Erla Signý - 19. des. '04 Hæhæ yndislegur, það er alltof langt síðan að ég sá þig, ég mamma þín verðum að fara að gera eitthvað í þessu !! en allavega óska ég ykkur gleðilegra jóla.
p.s ég sakna mömmu þinnar alltaf svolítið mikið á jólunum. átti ein af mínum bestu jólum með henni.
Erla Signý
Bergdís - 18. des. '04 hæ sæti! ég sakna þín rosa mikið því nú ertu á egilsstöðum, en ég veit að það er svaka gaman hjá þér! ég hlakka til að halda jólin með þér jólaengillinn minn! elska þig ástin mín! jólakveðja bíbí!
tobba & sæsi - 14. nóv. '04 frábært að heyra af íbúðinni í sporðagrunninum....nú verður sko stutt á milli okkar ;) Bara eins og í mílanó í dennn....
knús og kossar, togs
Solla - 10. nóv. '04 Hæ hæ flotti töffari.
Ég er að vinna með pabba þínum og var með múttunni þinni í skóla í "denn".
Mamma þín sagði mér frá því að þú ættir heimasíðu og ég varð bara að kíkja á hana, þú átt sko eina flottustu heimasíðu í bænum, enginn vafi á því.
Hilsen,
Solla
sigga amma - 18. okt. '04 Hæ!
Sigga amma hér.
Ég varð að segja þér að ég var að skoða fyrstu myndirnar af þér á heimasíðunni. Ósköp er nú stutt síðan þú varst svona lítill. Ekki flýta þér svona mikið að verða stór.
Kossar og knús til ykkar allra.
Sigga amma í snjóbylnum.
Hansína ömmusystir - 10. okt. '04 Elsku Benedikt minn. Mikið ert þú orðinn stór þriggja ára , ég ætlaði ekki að þekkja þig á myndunum. Ég heyrði hjá Siggu ömmu hvað þú ert duglegur að syngja.Jæja elskan mín guð geymi ykkur. Hansína frænka
Tobba og Sæþór - 9. okt. '04 Til hamingju með afmælið um daginn esssku kallinn okkar. Urðum því miður að taka íbúð og vinnu fram yfir augljóslega rosalegt afmælisboð! Þetta hefur verið þvílík hátíð, enda ekki skrítið þar sem prinsinn er orðinn þriggja ára.
Pakkinn er enn í bílnum og við vonumst til að koma honum til skila sem fyrst.
Knús til þín og þinna sætu foreldra, TogS
sigga amma - 7. okt. '04 Halló elsku Benó!
Takk fyrir síðast. Það var voða gaman að fá að vera hjá þér á afmælisdaginn. Þú og pabbi þinn voru frábærir að spila og syngja lagið ykkar. Allar kökurnar þeirra mömmu þinnar voru líka ofsagóðar sérstaklega púðursykurkakan og vínartertan, nammi nammmmmm.
Sjáumst seinna.
Þinn vinur Sigga amma
p.s. Það vantar eiginlega mynd af Áslaugu vinkonu þinni.
Stína - 3. okt. '04 Til hamingju með daginn elsku vinur! Vona að þú eigir góðan dag, ég kem og knúsa þig bráðum. Kv Stína
Inga Birna Barkardóttir - 24. sept. '04 Hæ hæ kæra fjölskylda.
Þetta er rosa flott síða hjá ykkur og þið eruð sko sætasta fjölskyldan!! Og mikið óskaplega er Lillinn ykkar mikið krútt! Benedikt segðu mömmu þinni að mig hlakki rosa mikið til að hitta hana á mánudaginn!!
Kv,Inga Birna
Hansína ömmusystir - 23. sept. '04 Þetta voru nú aldeilis skemmtilegar myndir þetta var eins og ömmusystir væri bara með í sumarfríinu. Þú ert alltaf jafn fallegur og góður elsku vinur. Nú er bara sólskin á Eskifirði og gott veður eins og alltaf. Hvenær heldur þú að við hittumst næst vonandi verður ekki langt þangað til. Guð geymi ykkur öll. Kveðja ÖMMUSYSTIR
Berglind þyri - 20. sept. '04 Hæ hæ Beni speni frændi sprændi... æðislegt sumarfri sem þu forst i með mams og paps.... Kram og knus-frænka!
Tante Sara - 15. sept. '04 KÆRE LILLE SMUKKE BENEDIKT!
-TAK FOR ALLE DINE BILLEDER, JEG ELSKER AT FØLGE MED I HVORDAN DU HAR DET, OG HVOR STOR OG STÆRK DU BLIVER!
MANGE KYS OG KNUS FRA DANMARK!
Sigga amma - 9. sept. '04 Elsku Benedikt.
Ég fer í svo gott skap þegar ég skoða nýju fallegu-og skemmtilegu myndirnar. Þær eru svo skemmtilega-fallegar og ég vildi að ég gæti bara tekið þig út úr myndunum og knúsað þig og kysst.
Þúúúúúúúsund kossar frá okkur afa og stórt stubbaknús.
Jenny i Sverige - 4. ág. '04 glad sommar på er!
I hope U are good! Please keep in touch somethimes.... I miss U!
Hundreds of Hugs from Jenny
www.liv-jenny.se
Sigga amma - 2. ág. '04 Sæll elsku Benedikt.
Þú sagðir mér að þú værir búinn í sumarfríinu og kominn heim í Drápuhlíðina. Við afi þinn söknum þín voða mikið og þess vegna er gott að fá að heyra röddina þína í símanum. Vertu duglegur að syngja og læra ný lög af því að það er svo gaman að heyra þig syngja.
Kossar og knús til allra á heimilinu.
Þín
Sigga amma
Þóra Jóna frænka - 2. ág. '04 Blessaður og sæll elsku frændi minn! Mér finnst nú orðið ansi langt síðan við sáumst síðast!! takk! En fegin er ég að sjá fullt af nýjum myndum hér á síðunni þinni:)Ég sé að þú hefur stækkað síðan síðast og það er nú gott. En vonandi sjáumst við nú fljótlega kallinn minn, bið að heilsa pabba labba þínum og múttunni þinni knús og koss
Þóra Jóna
Hansín ömmusystir - 31. júlí '04 Elsku Benedikt minn, mikið var gaman að sjá myndirnar af þér fyrir austan þar er alltaf blýðan.Nú fer hún ömmusystir þína að koma suður . Ég ætla að koma á afmælisdaginn he nnar Þóru Jónu ég fæ vonandi að sjá þig þá svo að þú gleymir mér ekki. Elskan mín guð geymi ykkur litla fjölskylda. BæBæ ömmusystir
Tobba og Sæþór í Mílanó:) - 18. júní '04 Elsku fallega fjölskylda....við erum ekkert smá sátt við þessu skyndilegu hreyfingu hér á síðunni og njótum hennar í botn. Svo skoðum við stundum myndirnar þegar Bensó var í pössun hjá okkur....það voru skemmtilegir tímar;)
Knús og kossar frá ofurþreyttum skólakrökkum sem eru að pakka búslóðinni sinni! Baci TogS
Sigga amma - 17. júní '04 Barnabarnalán
Með gleði í augum gáska á vör
þau ganga öll svo hnellin.
Í vinahópi snjöll og snör
stolt og prúð en smellin.
Kossar og knús frá Siggu ömmu (skáldi)
Sigga amma - 17. júní '04 Hæ, hó, litli Pelli!
Þetta eru glæsi-glæsilegar myndir af ykkur öllum. Þið eruð svo dúlluleg að amma gamla verðu kát í hjartanu þegar hún skoðar þær.
Jibbí, jei.
Það er gaman á 17. júní.
Kossar og knús
Sigga amma
Hansína frænka - 12. júní '04 Elsku Benedikt . Það eru aldeilis fallegar myndir komnar á netið. Það er gagn að það líði ekki eins langur tími í næstu myndir. Voðalega varstu duglegur að láta taka þessa leiðinlegu kirtla en nú verðu þú svo frískur og fínn. Rosalega ert þú samt falleglur strákur eins og þú hefur kyn til. það var gaman að sjá þig síðast alltaf jafn yndislegur. Guð geymi ykkur öll. Þín frælnka Hansína
Sigga amma - 12. júní '04 Sæll elsku Benedikt!
Það er nú aldeilis gaman að sjá nýju myndirnar á heimasíðunni þinni, svo er svo skemmtilegt að lesa það sem stendur hjá þeim.Ég er svo fegin að þú skulir vera laus við nefkirtlana. Pabbi þinn sagði að þú hefðir staðið þig mjög vel hjá lækninum. Þú ert líka svo duglegur strákur. Núna eru bara 28.dagar þar til þú kemur. Það verður gaman að fá að hafa þig, ég hlakka mjög mikið til.
Kossar og knús til ykkar allra.
Þín
Sigga amma
Jenny - 26. maí '04 Happy Summer Erla, Villy & Benedikt! I miss you!
Hugs from Jenny
den svenska flickan
Hansína frænka - 22. apr. '04 Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn elsku srtákurinn. Og sumarkveðja til mömmu og pabba. Vonandi hafið þið það sem allra best. Guð geymi ykkur. Sjáumst. Hansína frænka
tobba og sæþór - 16. apr. '04 hæ esskurnar:)
var núna fyrst að kíkja á jólamyndirnar......úpps, ekki slæmt að gera það svona rétt eftir páskana, maður er alla vegana ennþá í hátíðarskapi!
Vonum annars að þið hafið það sem allra best öllsömul og nú fer að styttast í okkur!
Sjáumst fljótt, knús TogS
Sigga amma - 29. mars '04 Sæll elsku Benedikt!
Ég var að frétta að þú hefðir farið að sjá hana Línu langsokk. Ég frétti líka að þú hefðir skemmt þér konunglega. Þú ert orðinn svo duglegur og stór að við afi þinn erum alveg undrandi. Ég kem og sæki þig í leikskólann á fimmtudaginn og ég hlakka svo til.
Kossar og knús.
Þín amma
Bryndís Tinna Hugadóttir - 21. mars '04 Hæ sæti frændi og takk fyrir síðast. Það var svakalega gaman að hitta þig um daginn, þú hefur stækkað ekkert smá. Við skulum nú reyna að láta ekki líða svona langt á milli þangað til við hittumst næst.
Kveðja af Skaganum
Bryndís Tinna, mamma og pabbi.
P.S takk fyrir kossinn!
Sigga amma - 19. mars '04 Sæll elsku vinur.
Þú ert alltaf að verða duglegri með hverjum degi sem líður. Það er verst að hún amma þín getur alltaf hlegið að þér jafnvel þó að það megi nú ekki alltaf, þú skilur hvað ég á við. Sjáumst í kvöldmat með langafa. Kossar og knús
Þinn vinur Sigga amma
Hansína frænka - 23. feb. '04 Elsku Benedikt minn nú er langt síðan við höfum sést . Svo þú ert búinn að vera lasinn mikið vildi ég vera komin ´suður til að knúsa þig og kyssa mig vantar svona strák til að hafa hjá mér Ég veit að Guð veri með ykkur öllum og passi þig elsku vinur . Bless Hansína frænka.
Þóra Jóna - 22. feb. '04 Hæ elsku litla fjölskylda, mér fannst mál til komið að hér yrði skrifað. Það er nú orðið soldið langt síðan ég sá ykkur síðast, en nú fer að styttast í að ég sjái ykkur dúllurnar mínar. Hlakka til að hitta ykkur, þar til þá, hafið það alltaf sem allra best.´
Kv.
Þóra Jóna
tobba lobba og sæsi frændi - 2. jan. '04 hæ essskurnar og gleðilegt ár:) alltaf gaman að kíkja við og nú fer maður að heimta jólamyndirnar á netið...........hehehe
knús og kossar t+s
vally frænka - 20. des. '03 hallo, langt síðan ég hef séð ykkur,kíki í heimsókn i januar og vááá hvað þú ert orðinn stór Benedikt
hallur frændi - 5. des. '03 var að skoða myndasafnið þitt. ...ég þarf nú að fara kíkja í heimsókn ha...
bið að heilsa mömmu og pabba!
tobba lobba og sæsi frændi - 3. des. '03 essssku bestu vinir:)
Nú eru bara 16 dagar þar til við komum heim og okkur hlakkar svo mikið til að hitta ykkur og sjá hvað bensó kallinn hefur stækkað mikið.......jibbí!!!!! Hafið það gott þangað til og njótið íslenska jólaundirbúningsins. SMAKK
sigga litla - 26. nóv. '03 hæ ég er í tölvutíma núna og kíkti aðeins við.
við sjáumst
sigga
Tobba lobba og Sæsi frændi - 20. nóv. '03 Esssku krútta vinirnir okkar:)
Frábært að sjá nýjar myndir af ykkur.........svona til að muna það hvað þið eruð fríð og falleg. Pakkinn kom áðan, takk fyrir það og að sjálfsögðu er strax komin magapína....hehehe Vorum reyndar ekki búin að borða nammi í 16 daga en fáum pásu í dag til að smjatta á íslensku góðgæti.......Takk aftur. Knús og kossar T+S
- 19. nóv. '03 Það vantaði orðið bíl
þín amma
Sigga amma - 19. nóv. '03 Mikið rosalega eru myndirnar fallegar úr ferðalaginu okkar. Það var nú gaman í sveitinni, þó að þér finnist nú ekkert sérstaklega gaman að vera í
Kossar og knús.
Amma
Jenny - 31. okt. '03 Hey Villi and Erla!
I havent heard anything from you guys since July in Milan. I´ve written alot of emails. Some of them are coming back. Please write me back....I don´t want to loose contact...
Big Hug from Jenny
Begga frænka - 30. okt. '03 Sæll frændi, voða fínar myndir úr afmælinu þínu. Þú ert orðin svo rosalega stór, byrjaður á leikskóla og allt. Mikið eru Sigga amma og Pelli afi heppin að geta verið nálægt þér því þú er algjör ljómi (",). Kannski sé ég þig þegar ég kíki í bæinn 7. nóv.
Kossar og knús
Begga frænka
Mílanóbúar:) - 29. okt. '03 Esssku krútta Benedikt og mútta þín og pápi;)
oooohhhh hvað það væri nú gaman ef þið væruð hérna í mílanó hjá okkur. Við förum varla í garðinn lengur því að það er einhvern veginn ekki rétt án ykkar. Annars biðja allir vel að heilsa og hann simo sérstaklega sem að fann popp í skónum sínum um daginn sem að þú hefur örugglega plantað þar fyrr í sumar.
knús og kossar esskurnar.
Tobba og Sæsi frændi
Sigga amma, Pelli afi og Sigga litla - 26. okt. '03 Elsku Benedikt!
Ósköp varstu góður þegar þú komst til okkar. Þú varst nú mjög duglegur í sundlauginni líka. :) Hvað er hvítt og brúnt og þú borðaðir tvo diska af því? Og svaraðu nú.
svar: Hrísgrjónagrautur með rúsínum og kanelsykri.
Kossar og knús:)
Arndís Þorvaldsdóttir - 16. okt. '03 Þetta er fróðleg síða fyrir safnmenn, stútfull af ættfræði. Hann Sæbjörn Snorrason sem er sonur hennar Siggu Valdísar leiksystur þinnar síðan í gamla daga er næstum jafngamall þér. Hann varð tveggja ára í fyrradag. hann er mikið að reyna að tala og þegar hann er sifjaður segist hann vera geispaður. kannski eigið þið eftir að leika ykkur saman einhvern tíman. bið að heilsa Pabba og mömmu. dísa vinkona Siggu ömmu.
Mílanóbúar:) - 15. okt. '03 eeeesssskkkkuuuu Benedikt okkar:) Rosalega hefur verið mikið af fólki og mikið stuð í ammælinu þínu....Við erum alveg hörkusvekkt að hafa misst af þessu öllu saman. En fáum kannski bara að koma í einkaammæli um jólin;) Þú ert að sjálfsögðu alltaf jafn hrikalega sætur og sæll, mig langaði alveg að ráðast á skjáinn og knúsa þig í gegnum tæknina........Jæja, góða nótt og knúsaðu parentið frá okkur. Söknum ykkar allra allt of mikið:( Tobba lobba og Sæsi frændi
Cristy - 15. okt. '03
Hello little Benedikt, you are growing so fast now. I love you a lot and i hope to see you soon! Creeessssttty
Bryndís Tinna Hugadóttir - 15. okt. '03 sæll stóri frændi og takk fyrir síðast. það var rosa gaman að koma í afmælið til þín, hlakka til að sjá þig aftur.
kveðja af Skaganum.
þetta er rosalega flott síða sem þú átt.
Jenny - 15. okt. '03 Hello Mr Benedikt, Vili and Erla!
I hope you are happily home in Island and that you are goooood all of you. Very lovely pictures of Benedikts B-day!
I miss you. Love/Jenny
Axel frændi - 15. okt. '03 ég vil nú bara segja takk fyrir síðast, þetta var æðislegt ammæli... góðar kökur og Helga Hrafni litla frænda fannst skinkuhornin svakalega góð! Sjáumst sem fyrst aftur. kv. Axel
Sævar Thor - 13. okt. '03 ...hæ hæ... þetta er ekkert smá flott síða sem þú átt, verð að fara að pikka í mömmu og biðja hana um að gera svona handa mér !!!
Kveðja Sævar Thor
Sigga litla - 13. okt. '03 Halló Benedikt og mikið rosalega hefurðu stækkað síðan ég sá
þig síðast.
Og svo er heimasíðan orðin
voða flott
Kveðja Sigga litla frænka
Sigga amma - 11. okt. '03
Halló elsku Benedikt.
Kossar og knús fyrir að sofa hjá okkur afa í nótt. Ósköp ertu nú góður drengur. Við sjáumst fljótt aftur. Vertu góður hjá pabba og mömmu.
Þinn vinur Sigga amma
Mílanóbúar - 8. okt. '03 Essssku Benedikt okkar:)
Til hamingju með ammælið þitt um daginn.......alltaf ertu að verða stærri og sterkari. Alla vegana, við söknum ykkar allra sárt hérna í mílanó og vorum næstum því farin að gráta í garðinum í gær þegar við fundum þig ekki á meðal allra krakkana sem voru að leika:( Og engin mamma eða pabbi að elta þig!!!
Kysstu þau frá okkur og biddu þau um að knúsa þig í kaf frá okkur stóri strákur.
Tanti baci, tuoi amici
Tobba + Sæþór
Lilja amma - 7. okt. '03 Benedikt er sætastur og bestur og Lilja amma elskar hann.
Þóra Jóna - 7. okt. '03 Takk kærlega fyrir mig!Það var æðislega gaman að koma í afmælið þitt og hitta líka llt þetta fólk. Hafðu það alltaf sem best :)
Mamma - 7. okt. '03 Til hamingju með gestabókina engillinn minn og fyrirgefðu hvað ég er búin að vera löt að setja inn myndir!
Hallur - 7. okt. '03 Til hamingju með afmælið Benedikt, það var gaman í veislunni hjá þér. Takk fyrir allar kökurnar!
|
|
 |
|
 |
 |
 |
|
| |
|