|
Þetta eru uppáhalds
Leikföngin mín!
Palli
páfagaukur sem mamma vann
í tívolíinu í Gardalandi, sérstaklega
handa mér. Hann er hér upp í hægra
horninu. Hann er besti vinur minn og sefur hjá mér
á nóttunum.
Næst er það Blái
vörubíllinn minn sem Lilja amma gaf mér.
Það er skemmtilegast að ,,burrrra'' með
hann út á svölum og henda honum niður
svo að mamma og pabbi þurfa að sækja hann.
Svo er það hesturinn
minn sem er einn af dýrunum mínum. Ég
hef hef rosalega gaman af dýrum og get hermt eftir
þeim sumum.
Boltinn minn er næstur
í röðinni. Ég fer oft með hann
á róló og bíð krökkunum
í fótbolta...því ég kann
nefninlega alveg að sparka!
Síðast en ekki síst er það þríhjólið
mitt sem mamma og pabbi gáfu mér í 1.
árs afmælisgjöf. Ég næ reyndar
ekki alveg niður á pedalana ennþá,
en pabbi og mamma ýta mér bara út um
allt á meðan ég stýri. Ég
tek aksturinn mjög alvarlega og vanda mig mikið þegar
ég erað keyra.
|