Óvissuferð!
Skemmtiferð á sunnudegi!


Halló, í dag er sunnudagur og ég ætla að taka ykkur með í ferðalag, og já, hérna er hann nýji "hálfbróðir minn" Tómas...


...hann er hamstur!


Jæja en allaveganna. Við erum kominn að stað...það var smá sudda-veður en við létum það ekki á okkur fá!


Ég tók með smá lesefni til að hafa á staðnum!


Það styttist óðum...


Þarna sést áfangastaðurinn...vitiði hver hann er?!


Ég og amma að springa úr spenningi í aftursætinu á Toyotunni!


Þarna er hún!!!!


Eimittt....þarna er áfangastaðurinn...


...glæsileg í rigningunni...


Jebbs. Það er hárétt...Hallgrímskirkja er áfangastaðurinn í dag!


Jæja, ekkert slór, LETS GO!


"Hallgrímskirkja er stærsta kirkja á Íslandi!"


Ó bojjj. Ég er á leiðinni upp í turninn í lyftu...8 hæðir takk!


Ó mæ god!....Hvaða hávaði er þetta...?


DINGGGGGG!!!!!


DOOOOOONNNNNGGGGGG!!!!


Og ...ding dong ding dong ding dong ding dong(litlu bjöllurnar).


Og þá er að skoða útsýnið!


Hey þarna er ...


Húsið okkar...þetta með bláa þakinu ; )


Amma er að horfa niður...


...Skólavörðuholtið!


Pabbi skrítni er að horfa...

....niður og....


...ég horfi bara...


...upp og svo aftur...


...niður!


Maður verður bara ringlaður svo þá var mál að slaka smá á og njóta þess að vera hér og halda sinn eigin sunnudagaskóla og læra um...


MÚMÍNÁLFANA!! HAAA!


Jæja förum á hæðina fyrir neðan...þar var ljósmyndasýning...


og klukkan.


...og það ekkert smá KLUKKA!


Ætli sé eitthvað meira að skoða hér...hmmm....


...Best að skoppa niður í lyftunni og þarna er presturinn að klára messu...


Þarna stóð hann í predikunarstólnum og sagði fólki að allir ættu að vera góðir og fara með bænirnar sínar ; )


...þetta er fótstigið á kirkjuorgelinu og...


Þetta er pípurnar...þannig að það heyrist eitthvað í þeim...



Og þarna er stytta af aðalgaurnum...JESÚ!


Og hér er fínt að vera..en hvað er þetta...


..allt í einu tók þessi upp á því að syngja...laaaa la la la...eitthvað á útlensku...ó mæ god og svonleiðis!


Þannig var það nú....sú stærsta á Íslandi!


Jæja við Tómas biðjum þá að heilsa í bili og hafiði það alltaf sem best...Bæ spæ...þangað til næst!