| Páskar og fleira!

Hey og Góðann daginn. Fleiri myndir...málið er að það er svo margt búið að gerast að ég veit hreinlega ekki hvar ég á að byrja... Best að byrja á því að segja ykkur frá því að við erum búinn að kaupa íbúðina í Eskihlíðinni...og svo stóru fréttirnar hjá okkur er þær að...

...ég er að verða STÓRI bróðir...thíhí...

Og þarna er barnið inn í mallanum á mömmu :D

Jæja en það er margt búið að ske og tildæmis var öskudagurinn mjööög skemmtilegur... Sigga amma saumaði á mig prinsabúning svo ég gæti verið prins í leikskólanum

Ég passaði mig á því að vakna tímanlega þannig að ég gæti klædd mig og verið tilbúinn...

...kanski vaknaði ég aðeins of snemma ;D

En dagurinn var góður! Tamm tamm!
Hmmm...hvað er meira búið að gerast skemmtilegt...
Júbbs ég er búinn að eignast nýja frænku...

...sem ég var ekki búinn að sýna ykkur...Hún heitir Sigga Máney og hún er sko algjööör rúsína...thíhí!

Afi kemur reglulega í heimsókn þegar hann er á fundum í Reykjavík...þá dúllum við okkur eitthvað saman : D

Síðan er hún Lilja amma búinn að kaupa sér íbúð í vesturbænum...rosalega kósí íbúð og þar er gott...

...fá að henda sér í bað. Séstaklega því að pabbi þurfti endilega að taka upp á því að rústa...
...baðinu okkar. Úfff!

Mér líst eiginlega ekkert á þetta...

...og pabba ekki heldur...en þetta hafðist að lokum

Og áður en páskarnir runnu upp gátum ég og mamma sko farið í bað í Eskihlíðinni okkar... hmmm eitthvað snýr kraninn skringilega; (

En við komumst í bað og Það var líka eins gott því að við vorum á leiðinni í páska"leyniferð"

Velkominn um borð í Toyotuna okkar...við erum á leiðinni...hmmm...mamma og pabbi voru eiginlega ekki búinn að segja mér það...

Við stoppuðum á stað sem heitir Mývatn og fengum okkur að snæða þaðr...hmmm...hvert skildum við vera að fara...

Pabbi hringdi í ömmu og sagði að við værum á leiðinni til Vestmannaeyja en hmmm...þetta er eitthvað skrítið..

Við vorum upp á miðjum fjallveg og þarna á leiðinni var alveg æðislega coool snjókall sem var stærri en ég og mamma...thíhí..

HALLLLLLÓÓÓÓ...við laumuðum okkur til Egilsstaða og komum öllum á óvart...thíhí : D

Á Egilsst-ðum var margt brallað...

Ég fór skíði og stóð mig eins og hetja...þó ég hafi stunum þurft að...

hvíla mig :D

Sigga frænka var að æfa sig á skíðabrettinu og stóð sig eins og hetja.

Addi var þarna með vini sínum líka og þarna voru dóri og Agnes líka og...

við fengum okkur smá samloku og kakó...(Brrrrrrrúúúmmmm)Konni er þetta hljóðið í mallanum á þér...ha...

Neibbbs þetta er snjóflóð hinummegin í hlíðinni...vótsss!

Og næsta ævintýri...

Labbi túr í sveitinni...með Adda og Dóra.

Pabbi og mamma sæta

Allir í labbistuði!

Upp, upp, upp á fjall. Upp á fjallsins brúúúúnnnnn!

Þarna var Agnes...

Og þarna fannst mér ég hafa séð rebba...

Svo var snjórinn á Egilsstöðum vel til þess fallinn að búa til sjókarl!!!

Siggurnar tvær chilla inni á meðan :D

Afi spnskur á svip að taka upp videomynd....

Og þá voru páskarnir á enda og leiðinn lá í bæinn á ný...
bæ amma og bæ afi og bæ Egilsstaðir: D

Svo þarf mann að sinna kalli náttúrunnar á leiðinni :D

Svo lúruðum við okkur vel og lengi...þetta var yndisleg ferð :D

Náði nefinu þínu thíhí :D

Mamma er alltaf að kenna mér ný spil...þarna erum við að spila Lúdó...svo kann ég líka Ólsen ólsen og veiðimann og fullt meira!

Þarna er leikvöllurinn sem ég fer oft á eftir leikskóla...hann er beint fyrir utan hjá mér...

...en stundum liggjum við pabbi bara inni í leti og leikum okkur í Playstation:D

Og þannig er nú það...sumarið komið og allt á fullu hjá mér...já og eitt...Ég er búinn að læra að flauta og vakna þessa dagana flautandi og glaður í sólinni...sjáumst brátt aftur...lofa ; )
|